05.04.2006 23:27:29 / hanna

STRANDGATAN.BLOGGAR.IS
    við erum búnar að gefa skít í blog.central það getur bara étið páskaeggið sitt öfugt og gælt við staðfestingarkódann sinn..
við erum hættar
 

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:45:42 / Rakel

nú er úti veður vont...

Verður allt að klessu.
Ekki er það bílum hollt,
að keyra um í þessu!
 
Nei við Svava viljum bara lýsa yfir hatri okkar á veðrinu þessa daganna!
Dagurinn byrjaði ekki skemmtilega, ég vaknaði snemma og fór útí þetta skemmtilega veður að skafa af bílnum sem var alveg á kafi! Keyrði svo heim, dreif ekki inn í stæðið! Bíllinn festist algjörlega þegar ég var hálfnuð inni stæðið! Svo ég gafst upp og skildi hann eftir með rassgatið ut á götu. Óf (segjir mar það ekki?)svo veginn að dyrunum! Kom rennandi blaut inn og svona. Svo þegar við ætluðum allar i skólann sköfuðum við bílinn hennar Svövu og þegar við vorum komnar i skólann þá festi Svava bílinn sinn þar á veginum, þarna hringnum lengst frá skólanum! Ég fór út og reyndi að ýta en það gekk ekkert! svo við skildum hennar bíl líka bara eftir á veginum....
En þetta er ekki búið enn...
Eftir skóla hjálpuðu stelpurnar í 3ja bekkjarráði Svövu að losa bílinn, svo í dag ætluðum við Svava sko að ná að losa bílinn sem eg var á!
En við náðum að láta hann renna úr stæðinu út á götu, en þá varð hann rafmagnslaus!! við reyndum og reyndum að koma honum i gang, kom einhver ótrúlega "svalur" gaur sem ætlaði að hjalpa okkur en var ekki með startkapla svo hann tók bara nokkrar svalar handbremsubeygjur á stæðinu fyrir okkur og vinkaði okkur bless!
En jæja svo komu Eydís og Pési og hjalpuðu okkur, engin okkar kunni þetta en Svava var bara i simasambandi við pabba sinn og þetta reddaðist loksins!
En vá hvað þetta er orðin löng færsla, þannig bless!
Vill einhver moka fyrir okkur i fyrramálið??

Kv.Rakel og Svava

» 11 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 14:29:42 / Svava

Eydís kú

Nú er komin helgi og þá verður allt gaman. Fullt af góðu fólki að koma norður um helgina, Bryndís, Sunna, Sara Lind og Andri Freyr. Ég held að þetta verði góð helgi! Bara verst að Rakel er veik og Hanna að vinna!

Ég og Eydís erum mikið búnar að vera að spá í lýtaaðgerðum uppá síðkastið og gerðum smá prufu í tölvunni í skólanum í dag.



Sætar vinkonur? Jáh, svo sannarlega!

Annars bara hef ég ekki neitt að segja. Farið varlega, hafið það gott!

» 11 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 04:11:06 / Rakel

hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag....

hún á afmæli hún svava, hún á afmæli í dag! já gellan er loksins orðin 19ára gömul og fær nú að njóta allra þeirra réttinda og fríðinda sem því fylgir!!
innilegar hamingjuóskir svava mín, vona þú njótir dagsins (veit að ég mun gera það þegar ég kemst í allar kökurnar sem þú bakaðir í dag!) 8) og allir að kyssa og knúsa hana í dag!! ;*;*
kv.Rakel og Hanna;*;*

ég get ekki sofnað, er so pirruð í fótunum og höndunum! vantar eilega að fara út að hlaupa eða eikkað...búin að liggja of lengi og sofa of mikið síðustu daga!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 00:45:07 / Svava

Videó!

Var að setja inn myndband úr naked partýinu hérna til hliðar. Svo eru nokkur önnur misskemmtileg myndbönd (haha, skrifaði fyrst myndbörn) þarna líka! Eru reyndar frekar óskýr.

Kveðja, Svavasemeraðverðavitlausþvíhúnhefurekkifengiðsinnskammtafsykriídag.

» 21 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 12:39:44 / hanna

myndir MYNDIR og aftur naked MYNDIR ;)

Helgin!

Föstudagur:
  • Fyrsta djammið mitt í langan tíma á ak.. varð alls ekki fyrir vonbrigðum :haha:
  • Árni Einar kom í heimsókn og var yfir helgina
  • Naked party heima hjá bróður hennar Heiðu ;)
  • MA vann MR, fékk ég nokkrum sinnum að heyra :lol:
  • Tryggvi pimp
  • Oddvitinn góði, minnir að þar hafi verði dansað
  • Ungum manni boðið heim af öðrum manni á oddvitanum.. love
  • Wig Wam.. hefði alveg eins gefið peninginn minn
  • Braut hælinn af skónum mínum :^)
Laugardagur:
  • Vaknaði svona helvíti hress :$
  • Fór á krókinn með Svövu
  • Horfði á minn fyrsta körfuboltaleik, hélt og öskraði á Njarðvík :lol:
  • Jói, Salli og Birkir komu í heimsókn
  • Hélt Siglfirðingaparty
  • Oddvitinn góði
  • Týndi kortinu mínu
  • Sjallinn - Í svörtum fötum
  • fann kortið mitt
  • Týndi veskinu mínu
  • Dans dans dans
  • fann veskið mitt
  • Jónsi ber að ofan :lol:
  • Fólk keyrt heim af löggunni :haha:
  • Fólk á Hótelherbergi ;)
  • Fólk mjög mjög mjög drukkið og týnir húslyklum
  • Gleymdi kápunni minni
  • Birkir týndur í strandgöunni
  • Strandgatan full af fólki
Sunnudagur:
  • Vaknaði hressari en á laugardaginn
  • Horfði á hræðilegasta One tree hill þátt !!
  • Fullt hús af fólki
  • Brynju ís og sunnudagsbíltúr
  • Sumir snar~ofvirkir !! *hóst*salli*hóst*
  • 84 bjórdósir
  • Ak-inn
  • Bíó - The pink Panther baaaara fyndin ;)
jæja.. bara nokkuð góð færsla nr 2 :) veit ekki alveg hvort ég sé að gleyma einhverju..
kv. Hanna

» 23 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 00:48:02 / hanna

mín fyrsta færsla í laaangan tíma..


Bíðið spennt

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 14:10:48 / Svava

Twister




Ákvað að skella inn einni mynd frá því á laugardaginn. Já, þið sem mættuð ekki misstuð af miklu!

Kv. Svava
 

» 25 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 10:43:44 / Svava

Ótti

Ég var að hlusta á Zúúber áðan á leiðinni í skólann og þau voru að spyrja fólk hvað það væri sem þau óttast. Það eru allir hræddir við eitthvað.
Ég er hrædd við froska og mýs. Ég þori ekki að fara langt útí sjó, eins og þegar maður er á strönd, því ég er hrædd við fiska og fullt, fullt meira.

Við hvað eruð þið hrædd?

» 35 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:39:45 / Svava

Tík

 Færsla númer 2 í dag. Leiðist, er að bíða eftir því að Rakel verður búin í sturtu svo ég geti farið! Svona er þetta þegar 3 stelpur búa saman, alltaf bið eftir baðherberginu!

Langaði að deila smá með ykkur, þó það sé ekkert merkilegt!
Hundurinn minn eignaðist hvolp fyrir nokkrum dögum síðan! Svo skemmtilega vildi til að hún eignaðist hann í rúminu mínu! Frábært! Svo leiðinlega vildi aftur á móti til að hvolpurinn dó :( kannski ekki skrýtið þar sem hún Pía mín ætti ekki einu sinni að geta orðið hvolpafull, eða það héldum við svo enginn vissi að svo væri.
Hún er að verða 11 ára í marsmánuði (já, mars er besti mánuðurinn), sem er 77ára í hundaárum! Það er líka mjög líklegt að um sifjaspell hafi verið að ræða, þar sem meirihluti hunda sem búsettir eru í Njarðvíkunum eru komnir undan henni! Pía litla sóðabrók! Núna er hún svo sorgmædd og alltaf að leita af hvolpinum. Hún er sæt.

Jæja, meira var það ekki í bili.
Kv. Svava

» 9 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 12:44:11 / Svava

Sunna er hommi

Hlakkar til að Eurovision verður! Snilld að Silvía hafi unnið þetta! Við héldum smá Eurovision stelputeiti á laugardaginn, búin að skella inn myndum

Jæja Sunna, hafðu þetta! You maniac...

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 22:28:04 / Svava

Jæja...

Vá hvað ég er að fara að gera mig að fífli á morgun!

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 13:33:30 / Svava

?

Nú stend ég frammi fyrir rosalega stórri ákvörðun í lífi mínu og bið um ykkar aðstoð.

Á ég að djamma á föstudaginn eða laugardaginn?

Image hosted by Photobucket

Hver væri ekki til í Leoncie?..

» 20 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 13:51:31 / Svava

Myndir - Myndir - Myndir

Hellú... svaka stuð í íslenskri afbrotasögu alltaf!
Var að setja inn fullt af myndum:

20.janúar Stefán og Bragi vinur Hönnu komu í heimsókn ásamt eitthvað af fastagestunum og svo var farið í Oddvitann.
21.janúar Stefán og Bragi ennþá í heimsókn. Farið var á blindt fyllerí, bókstaflega (bundið fyrir augun), haldið í Sjallann á ball með Á Móti Sól og síðan í eitthvað eftirpartý!
Ytri-Vík 23.janúar Próflokadjamm í Ytri-Vík. Örugglega ekkert gaman afþví að ég var ekki þarna :P !
Oddvitinn 26.janúar Partý með fastagestunum í Strandgötunni og Oddvitinn.

Vonandi styttir þetta ykkur stundir í skólanum, ykkur sem eruð með tölvu allavegana.

» 11 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 16:33:57 / Rakel

júróvísjon i kveld...


Image hosted by Photobucket

og allir ætla að kjósa Silvíu Nótt8)
http://media.putfile.com/Silvia-nott---til-hamingju-island

Kv. Rakel og Svava, tremma töff skiluru...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5